Sýnt beint frá Tottenham-vellinum á mbl.is

Harry Kane og félagar í Tottenham hefja tímabilið á heimavelli …
Harry Kane og félagar í Tottenham hefja tímabilið á heimavelli gegn Southampton. AFP/Andy Buchanan

Leikur Tottenham og Southampton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem hefst á Tottenham-leikvanginum í London klukkan 14.00 verður sýndur beint hér á mbl.is. 

Útsendingin hefst  kl. 13.30 með upphitun á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn. Flautað er til leiksins klukkan 14.00.

Tottenham hafnaði í fjórða sæti deildarinnar á síðasta tímabili og vann sér inn sæti í Meistaradeild Evrópu en Southampton hafnaði í fimmtánda sæti, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert