Nýliðar Fulham unnu sinn þriðja sigur í röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, er liðið gerði góða ferð til Leicester og fagnaði 1:0-sigri.
Aleksandar Mitrovic skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik og fetaði þar með í fótspor Heiðars Helgusonar og skoraði í sínum þriðja deildarleik í röð í ensku úrvalsdeildinni fyrir Fulham, en Heiðar afrekaði það árið 2006.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.