Grosjean maður dagsins

Romain Grosjean hjá Haas á ferð í Melbourne, á eftir …
Romain Grosjean hjá Haas á ferð í Melbourne, á eftir kemur Fernando Alonso hjá McLaren.

Franski ökumaðurinn Romain Grosjean hjá Haas er handhafi fyrsta verðlaunagripsins sem veittur er „manni dagsins“ í formúlu-1. Ók hann úr 19. sæti á rásmarki til sjötta sætis á endamarki í fyrsta kappakstri Haasliðsins í formúlu-1.

Tilkynnt var um úrslitin á hinu opinbera vefsetri formúlunnar, formula1.com, en aðdáendur íþróttarinnar tóku þátt í kjörinu og greiddu atkvæði á netinu.

Kom ekki fram hvernig atkvæðin féllu milli ökumanna og í þágu sanngirni voru strikuð út atkvæði sem greidd voru margsinnis úr sömu tölvu eða síma.

„Þetta er sigur fyrir okkur, þetta er sigur,“ sagði Grosjean tilfinningaþrungið á innhring í lok kappakstursins í Melbourne. „Mér líður eins og við stöndum á efsta þrepi verðlaunapallsins.“

Romain Grosjean á leið til sjötta sætis í Melbourne á …
Romain Grosjean á leið til sjötta sætis í Melbourne á Haasa-bílnum. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert