Fyrsta mark Arons tryggði stig

Aron Sigurðarson í leik með Start.
Aron Sigurðarson í leik með Start. Ljósmynd/Heimasíða Start

Aron Sigurðarson reyndist hetja Start í dag þegar hann tryggði liðinu stig í botnbaráttuslag gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, 1:1.

Eftir markalausan fyrri hálfleik komst Stabæk yfir á 70. mínútu. Átta mínútum fyrir leikslok jafnaði Aron Sigurðarson hins vegar metin með sínu fyrsta marki fyrir liðið og tryggði Start eitt stig, lokatölur 1:1.

Aron spilaði allan leikinn með Start eins og Kristján Flóki Finnbogason, en Guðmundur Andri Tryggvason var ekki með liðinu. Start og Stabæk eru bæði með fjögur stig í neðstu sætum deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert