Lið munu óttast Liverpool

Liverpool er Evrópumeistari árið 2019.
Liverpool er Evrópumeistari árið 2019. AFP

„Lið í Evrópu munu óttast þetta Liverpool-lið. Enginn vill mæta Liverpool og spila á Anfield. Það er ótti í öðrum liðum,“ sagði Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, á BT-sjónvarpsstöðinni í kvöld. 

Liverpool vann 2:0-sigur á Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld og tryggði sér sinn sjötta Evrópumeistaratitil. Frammistaða Liverpool í kvöld var ekki stórkostleg, en Ferdinand segir það ekki skipta máli.

„Liðið er búið að ná í stór úrslit. Það mun enginn muna eftir frammistöðunni í dag á næstu árum,“ sagði Ferdinand sem varð Evrópumeistari með Manchester United árið 2008. 

„Við spiluðum ekki vel á móti Chelsea árið 2008, en mér gæti ekki verið meira sama. Þessir leikmenn eiga þetta skilið,“ sagði Ferdinand. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert