Sigrar hjá Dagnýju og Gunnhildi

Dagný Brynjarsdóttir er í toppsætinu.
Dagný Brynjarsdóttir er í toppsætinu. AFP

Landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir gátu fagnað sigrum með liðum sínum í bandarísku atvinnudeildinni í fótbolta í nótt. 

Dagný var í byrjunarliði Portland Thorns sem vann sannfærandi 3:1-heimasigur á Washington Spirit. Dagný fór af velli á 83. mínútu. Portland hefur unnið tvo síðustu leiki sína og er liðið með fjögurra stiga forskot á Chicago á toppi deildarinnar. 

Gunnhildur byrjaði á bekknum hjá Utah Royals í 2:0-sigri á Orlando Pride á útivelli. Gunnhildur kom inn á sem varamaður á 67. mínútu í stöðunni 1:0. Utah er nú búið að vinna þrjá leiki í röð eftir erfitt gengi þar á undan og er liðið í 4. sæti með 27 stig. 

Fjögur efstu liðin fara í umspil í lok tímabilsins og keppa um bandaríska meistaratitilinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert