Inter að fá enn einn leikmanninn frá United

Tahith Chong í leiknum gegn Wolves.
Tahith Chong í leiknum gegn Wolves. AFP

Ítalska knattspyrnufélagið Inter Milanó er á höttunum á eftir Tahith Chong, leikmanni Manchester United. Samningur Chong við United rennur út eftir leiktíðina og má hann því ræða við félög utan Englands í janúar. 

Inter hefur verið duglegt að fá leikmenn frá Manchester United að undanförnu. Fyrir leiktíðina nældi félagið í Romelu Lukaku og Alexis Sáncehz og Ashley Young bættist í þann hóp fyrr í mánuðinum. 

Chong hefur spilað sjö leiki með United á leiktíðinni og kom sá síðasti gegn Wolves í enska bikarnum í byrjun mánaðar. Hann hefur alls leikið ellefu leiki með enska liðinu. Þá hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Hollands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert