Skagamaðurinn skoraði sigurmarkið

Ísak Bergmann Jóhannesson fagnar marki.
Ísak Bergmann Jóhannesson fagnar marki.

Sænska liðið Norrköping hafði betur gegn norska liðinu Sarpsborg í æfingaleik í knattspyrnu í Noregi í dag, 2:1. 

Hinn 16 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sigurmark Norrköping á 69. mínútu, en hann gekk í raðir Norrköping frá ÍA á síðasta ári. Ísak lék einn deildarleik með ÍA 2018 og einn leik með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni 2019.

Skagamaðurinn hefur leikið með U16, U17 og U19 ára landsliðum Íslands, alls 21 leik, og hefur skorað í þeim ellefu mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert