Guardiola vill ítalskan landsliðsmann

Leonardo Bonucci
Leonardo Bonucci AFP

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur áhuga á að fá varnarmanninn Leonardo Bonucci til félagsins frá Juventus. City hefur verið í vandræðum með miðvarðarstöðuna á tímabilinu vegna meiðsla Aymeric Laporte. 

Að sögn Daily Mail hefur Guardiola misst trúna á Nicolas Otamendi og John Stones og telur hann Bonucci vera tilvalinn til að koma í stað þeirra. Að sögn Calcio Mercarto á Ítalíu, hefur Juventus hins vegar takmarkaðan áhuga á að selja leikmanninn. 

Hefur Bonucci verið lykilmaður hjá Juventus og lék hann 41 leik á síðustu leiktíð og 34 á þessari leiktíð, áður en hlé var gert á knattspyrnu á Ítalíu, sem og nánast öllum öðrum deildum Evrópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert