Hættur með enska landsliðið

Phil Neville hefur látið af störfum hjá enska knattspyrnusambandinu.
Phil Neville hefur látið af störfum hjá enska knattspyrnusambandinu. AFP

Phil Neville er hættur sem þjálfari enska kvennalandsliðsins í knattspyrnu.

Þetta staðfesti enska knattspyrnusambandið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Neville er að taka við Inter Miami, knattspyrnufélagi Davids Beckhams, í bandarísku MLS-deildinni.

Neville mun skrifa undir tveggja ára samning við bandaríska félagið en hann er 43 ára gamall og hefur stýrt enska liðinu frá 2018.

Keppnistímabilið í Bandaríkjunum hefst í lok febrúar en félagið var stofnað á síðasta ári og hafnaði í 19. sæti deildarinnar á sínu fyrsta tímabili.

Óvíst er hver mun stýra enska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Tókýó næsta sumar en Sarina Wiegman mun taka við þjálfun enska liðsins næsta haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert