Mikael skoraði í Íslendingaslag

Mikael Anderson skoraði þriðja mark Midtjylland.
Mikael Anderson skoraði þriðja mark Midtjylland. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Mikael Anderson og samherjar hans í Midtjylland fögnuðu öruggum 4:1-útisigri á AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Mikael kom inn á sem varamaður á 24. mínútu fyrir meiddan Frank Onyeka og hann nýtti tækifærið vel því hann kom Midtjylland í 3:1 á 84. mínútu. Alexander Scholz, fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar, skoraði annað mark liðsins. 

Jón Dagur Þorsteinsson byrjaði á bekknum hjá AGF en hann kom inn á sem varamaður á 65. mínútu í stöðunni 2:1. 

Midtjylland, sem er ríkjandi meistari, er með fjögurra stiga forskot á Bröndby á toppi deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert