Sjáðu mark Þorleifs í Bandaríkjunum (myndskeið)

Þorleifur Úlfarsson í leik með 21-árs landsliðinu á dögunum. Hann …
Þorleifur Úlfarsson í leik með 21-árs landsliðinu á dögunum. Hann skoraði gegn Chicago í nótt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þorleifur Úlfarssson skoraði fyrra mark Houston Dynamo í 2:0 sigri á Chicago í MLS-deildinni í gærnótt.

Þor­leif­ur kom Hou­st­on Dynamo á bragðið á 23. mínútu áður en Darwin Quintero bætti við öðru markinu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. 

Þetta var annað mark Þorleifs í sextán leikjum á tímabilinu. Hann lék nær all­an leik­inn og var skipt af velli á 87. mín­útu.

Hou­st­on er komið upp í átt­unda sæti Vest­ur­deild­arinnar, tveim­ur stig­um frá sjö­unda sæt­inu sem gef­ur keppn­is­rétt í úr­slita­keppn­inni. Mark Þorleifs má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert