Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir hafnaði í kvöld í 18. sæti á fyrsta móti sínu á tímabilinu, Evrópubikarmóti í sprettþraut sem fram fór í Las Palmas á Kanaríeyjum.
Keppendur á mótinu voru 53. Guðlaug fer þaðan til Portúgals en næsta mót hennar fer fram í Quarteira á Algarve-ströndinni um næstu helgi.