Íris sigraði í keppni með loftriffli

Íris Eva Einarsdóttir sigraði í keppni með loftriffli.
Íris Eva Einarsdóttir sigraði í keppni með loftriffli. Ljósmynd/STI

Árlega opna Christensen-mótið í skotfimi var haldið í Egilshöllinni í Grafarvogi í gær. Íris Eva Einarsdóttir sigraði í keppni með loftriffli með 602,3 stig, í öðru sæti varð Jórunn Harðardóttir með 599,7 stig.  Guðmundur Helgi Christensen hafnaði í þriðja sæti með 597,7 stig en þau koma öll úr Skotfélagi Reykjavíkur.

Í keppni með loftskammbyssu sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 570 stig, í öðru sæti varð Ívar Ragnarsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 563 stig og í þriðja sæti Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 554 stig.

Ásgeir Sigurgeirsson sigraði í keppni með loftskammbyssu.
Ásgeir Sigurgeirsson sigraði í keppni með loftskammbyssu. Ljósmynd/STI
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert