Már aftur undir núgildandi heimsmeti

Már Gunnarsson
Már Gunnarsson

Már Gunnarsson synti annan daginn í röð undir gildandi heimsmeti á Íslandsmeistaramótinu í sundi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Már, sem keppir fyrir ÍBV, synti 50 metra baksund á 33,17 sekúndum, en hann keppir í flokki S11 (blindir).

Róbert Ísak Jónsson frá Firði/SH vann í dag til silfurverðlauna í 200 metra fjórsundi á 2:10,44 mínútum. Róbert keppir í S14 flokki (þroskahamlaðir).

Þá setti Þórey Ísafold Magnúsdóttir, ÍFR, Íslandsmet í 50m flugsundi S14 er hún kom í bakkann á 35,76 sek og sló þar með 15 ára gamalt Íslandsmet Báru Bergmann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert