Eva og Birnir nálægt verðlaunum

Steingerður Hauksdóttir varð sjöunda í sinni grein.
Steingerður Hauksdóttir varð sjöunda í sinni grein. mbl.is/Unnur Karen

Norðurlandameistaramótið í sundi hélt áfram í Svíþjóð í dag og kepptu níu Íslendingar í úrslitum. Íslendingar unnu ekki til verðlauna í dag en Eva Margrét Falsdóttir og Birnir Freyr Hálfdánarson komust næst með að enda í fjórða sæti.

Eva Margrét  synti fyrst Íslendingana í dag, hún synti 400m fjórsund á tímanum 4:54,56 og varð í fjórða sæti en það munaði innan við sekúndu á henni og þriðja sætinu. Eva á best 4:53,22. Birnir Freyr synti 200m fjórsund á tímanum 2:04,14 og varð í 4. sæti. Hans besti tími er 2:03,54.

Veigar Hrafn Sigþórsson synti 1500m skriðsund á tímanum 16:18,21. Hans besti tími er 16:05,23, hann varð í 6. sæti.

Freyja Birkisdóttir synti 200m skriðsund á tímanum 2:05,35 og varð í 7. sæti í unglingaflokki. Þetta er bæting á hennar tíma en hún átti best 2:06,26.

Kristín Helga Hákonardóttir synti einnig í úrslitum 200m skriðsunds á tímanum 2:03.55 sem er rétt við hennar besta, 2:03,31. Hún lenti í 7. sæti í fullorðinsflokki. 

Steingerður Hauksdóttir synti einnig í úrslitum í kvöld, hún synti 100m baksund á tímanum 1:03,42 og varð í 7. sæti. Hennar besti tími í greininni er 1:02,91.

Daði Björnsson synti 50m bringusund á tímanum 28,68 og varð sjöundi í sundinu. Þetta er við hans besta tíma sem er 28,41.

Fannar Snævar Hauksson synti 100m skriðsund á tímanum 52,33 og varð í 8. sæti. Hans besti tími er 51.56. Simon Elías Statkevicius synti einnig 100m skriðsund á tímanum 50,58 og varð í sjöunda sæti. Hann á best 50,23.

Kvennasveit Íslands synti 4x 100m fjórsund á tímanum 4:19,53 og var í 6 sæti. Sveitina skipuðu þær Steingerður Hauksdóttir, Eva Margrét, Kristín Helga og Freyja Birkisdóttir.

Karlasveit Íslands stakk sér síðast til sunds í 4x 100m fjórsundi og synti á tímanum 3:46,88 og varð í 5 sæti. Sveitina skipuðu þeir Fannar Snævar, Daði Björnsson, Birnir Freyr og Veigar Hrafn. Fannar stór bætti tíma sinn í boðsundinu í 100m baksundi en hann synti á 56 sekúndum en gamli tími hans var 58,27.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert