Kvennasveit Kjalar leikur á EM í Þýskalandi

Nína Björk Geirsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir.
Nína Björk Geirsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir. Brynjar Gauti

Kvennasveit Kjalar, sem sigraði í 1. deild í sveitakeppninni á Akureyri fyrr í sumar, tekur þátt á Evrópumóti í klúbbakeppni 27.-29. september. Leikið verður á Golf Club Bergisch-vellinum í Wupperthal í Þýskalandi. Sveit Kjalar er þannig skipuð: Nína Björk Geirsdóttir, Helga Rut Svanbergsdóttir, Guðríður Sveinsdóttir og Snæfríður Magnúsdóttir er liðsstjóri. Keppni hefst á fimmtudaginn og lokakeppnisdagur mótsins er á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert