Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari á þriðja hring sínum á BMW International Open-mótinu sem fram fer í Þýskalandi á Evrópumótaröðinni.
Birgir lék heilt yfir nokkuð vel en 9. holan skemmdi fyrir. Hana lék Birgir á 8 höggum, eða fjórum höggum yfir pari. Birgir Leifur er samtals á sex höggum yfir pari eftir fyrstu þrjá hringi mótsins og er fyrir vikið jafn í 69. sæti.
Efstu kylfingar mótsins, þeir Lucas Bjerregaard, Max Kieffer og Scott Hend eru á 5 höggum undir pari.