Staða Ólafíu versnaði nokkuð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á 75 höggum eða á þremur höggum yfir pari á fjórða hring sínum á lokaúrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi á NO.6-vellinum í Norður-Karólínu­ríki í dag. 

Ólafía fékk fjóra skolla og einn fugl á holunum 18 og er hún samtals á 12 höggum yfir pari eftir fjóra af átta hringjum. Hún er sem stendur í 83. sæti, 23 höggum frá efstu konum. 

45 efstu kylfingarnir tryggja sér sæti á LPGA-mótaröðinni og þarf Ólafía að leika mun betur til að eiga einhvern möguleika á því. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert