Hópur HK-inga stækkar

Eiríkur Guðni Þórarinsson er kominn til HK.
Eiríkur Guðni Þórarinsson er kominn til HK. Ljósmynd/HK

HK, sem verður nýliði í úrvalsdeild karla í handknattleik á næsta keppnistímabili, heldur áfram að stækka hóp sinn fyrir átökin á komandi vetri.

Eiríkur Guðni Þórarinsson, 19 ára gamall línumaður úr Val, er genginn til liðs við HK og hefur skrifað undir tveggja ára samning. Eiríkur lék með ungmennaliði Vals í 1. deildinni á nýliðnu tímabili og hefur spilað með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert