Viggó og Bjarki fara vel af stað

Viggó Kristjánsson.
Viggó Kristjánsson. Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson

Landsliðsmennirnir Viggó Kristjánsson og Bjarki Már Elísson eru í öðru og þriðja sæti yfir markahæstu menn í þýsku 1. deildinni í handknattleik, sterkustu deild heims.

Viggó er nú næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 29 mörk fyrir Stuttgart í fyrstu fjórum umferðunum og Bjarki Már er á hælum hans með 28 mörk í þriðja sætinu.

Bjarki varð markakóngur deildarinnar á síðasta tímabili. Niclas Ekberg leikmaður Kiel er markahæstur með 31 mark.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert