Andrea drjúg þegar Kristianstad fór naumlega áfram

Andrea Jacobsen í leik með íslenska landsliðinu.
Andrea Jacobsen í leik með íslenska landsliðinu. Eggert Jóhannesson

Íslenska landsliðskonan Andrea Jacobsen var á meðal markahæstu leikmanna sænska liðsins Kristianstad þegar liðið vann nauman 20:19 sigur á slóvenska liðinu Ajdovscina í síðari leik liðanna í 1. umferð Evrópubikarsins í handknattleik kvenna í kvöld.

Andrea skoraði fjögur marka Kristianstad en markahæst í leiknum var liðsfélagi hennar Sofia Delac með fimm mörk.

Fyrri leik liðanna í 1. umferðinni lauk með 26:26 jafntefli í gærkvöldi, þar sem Andrea lagði upp tvö mörk, og Kristianstad er þar með komið áfram í 2. umferð keppninnar eftir samanlagðan 46:45 sigur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert