Þrír æfðu ekki í dag

Íslendingar fagna marki Alfreðs Finnbogasonar í gær.
Íslendingar fagna marki Alfreðs Finnbogasonar í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðið tók létta æfingu á æfingavellinum í Kabardinka í morgun en liðið kom seint heim í gær eftir frægðarför til Moskvu þar sem liðið gerði 1:1 jafntefli við tvöfalda heimsmeistara Argentínu á HM.

Jóhann Berg Guðmundsson tók ekki þátt í æfingunni en hann er þessa stundina í myndatöku vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í gær. Alfreð Finnbogason og Gylfi Þór Sigurðsson voru heldur ekki á æfingunni en þeir aðrir sem voru í byrjunarliðinu tóku létt skokk og fóru síðan í nudd á meðan þeir leikmenn sem komu inná og spiluðu ekkert í gær tóku vel á því á æfingunni sem stóð yfir í um 80 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert