Pique veldur titringi í herbúðum Barcelona

Aðkoma Gerard Pique að heimildarmyndinni La Decision hefur valdið titring …
Aðkoma Gerard Pique að heimildarmyndinni La Decision hefur valdið titring í herbúðum Barcelona. AFP

Aðkoma Gerard Pique að heimildarmyndinni La Decision hefur valdið titringi í herbúðum Barcelona. Í myndinni má sjá Antoine Griezmann tilkynna ákvörðun sína um að hann ætlaði að vera áfram hjá Atlético Madrid í stað þess að ganga til liðs við Barcelona.

Varaforseti Barcelona, Jordi Mestre, sagði að félagið myndi tala við Pique og Umtiti. „Forsetinn hefur talað við Gerard Pique og sagt honum að aðkoma hans hefur vakið upp furðu og óróa innan félagsins og meðal stuðningsmanna.“

Pique er hissa á þeirri gagnrýni sem hann hefur fengið. „Ég talaði við Griezmann og hann sagði að það væri möguleiki að hann myndi koma til Barcelona. Ég sagði honum að við ættum að gera mynd og að það væri spennandi fyrir fólk að fá að fylgjast með því hvernig svona ákvarðanir eru teknar. Eftir það steig ég augljóslega til hliðar.“  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert