Allir klárir í slaginn nema Jóhann Berg

Jóhann Berg Guðmundsson í leiknum gegn Argentínu.
Jóhann Berg Guðmundsson í leiknum gegn Argentínu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhann Berg Guðmundsson er sá eini í íslenska landsliðshópnum sem er tæpur fyrir leikinn gegn Nígeríumönnum á HM en þjóðirnar eigast við í Volgograd á föstudaginn.

Þetta kom fram á fréttamannafundi íslenska landsliðsins í Kabardinka í morgun. Helgi Kolviðsson aðstoðarþjálfari greindi frá því að Jóhann Berg hefði tognað á kálfa í leiknum gegn Argentínu og óvissa ríkir hvort hann geti verið með í leiknum á móti Nígeríu.

Nígería tapaði 2:0 fyrir Króatíu í fyrstu umferðinni um síðustu helgi en Ísland og Argentína skildu jöfn 1:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert