Stigahæsti íslenski leikmaðurinn til Stjörnunnar

Marvin Valdimarsson.
Marvin Valdimarsson. mbl.is/Ómar

Marvin Valdimarsson skrifaði í gær undir samning við úrvalsdeildarlið Stjörnunnar og mun hann leika með körfuknattleiksliðinu næsta vetur – auk þess að þjálfa yngri flokka félagsins.

Marvin var stigahæsti íslenski leikmaðurinn í Iceland Express deildinni í vetur þar sem hann skoraði um 25 stig að meðaltali í leik. Marvin er 28 ára gamall og hefur hann leikið með Fjölni og Hamri.  Frá þessu er greint á heimasíðu Stjörnunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert