Martin átti þátt í „körfu vikunnar“ (myndskeið)

Martin Hermannsson í leik með íslenska landsliðinu.
Martin Hermannsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson, leikmaður þýska úrvalsdeildarliðsins Alba Berlin, á stóran þátt í „körfu vikunnar“ úr 2. umferð deildarinnar.

Martin átti glæsilega stoðsendingu á Litháann Rokas Giedraitis en körfuna má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert