Sigrún Sjöfn áfram í Borgarnesi

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verður áfram í Borgarnesi.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verður áfram í Borgarnesi. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Körfuboltakonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verður áfram í röðum Skallagríms. Félagið tilkynnti í dag að hún hefði skrifað undir nýjan samning við félagið. 

Sigrún er þrítug og uppalin í Borgarnesi. Hún er fyrirliði liðsins og hefur verið einn besti leikmaður þess síðustu ár. Hún skoraði 10,8 stig, tók 7,4 fráköst og gaf 3,4 stoðsendingar að meðaltali á síðustu leiktíð. 

Auk Skallagríms hefur Sigrún leikið með Haukum, KR, Hamri og Grindavík. Hún á 53 landsleiki að baki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert