Leikmenn Utah búnir að jafna sig

Donovan Mitchell er búinn að jafna sig.
Donovan Mitchell er búinn að jafna sig. AFP

Körfuknattleiksmennirnir Donovan Mitchell og Rudy Gobert eru búnir að jafna sig á kórónuveirunni. Gobert var sá fyrsti í NBA-deildinni sem greindist með veiruna og skömmu síðar var tilkynnt um smit Mitchell. Eru þeir liðsfélagar hjá Utah Jazz.  

Þrír leikmenn deildarinnar hafa jafnað sig á veirunni en Christian Wood hjá Detroit Pistons náði fullri heilsu fyrir helgi.

Ekki hafa borist fréttir af öðrum leikmönnum sem hafa jafnað sig en Marcus Smart hjá Boston Celtics, Kevin Durant hjá Brooklyn Nets og ónafngreindir leikmenn Los Angeles Lakers hafa einnig greinst með veiruna. 

Eins og sjá má í meðfylgjandi „tísti“ var Mitchell afar kátur með fréttirnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert