Einn sá besti áfram í Keflavík

Dominykas Milka leikur með Keflavík á næstu leiktíð.
Dominykas Milka leikur með Keflavík á næstu leiktíð. Ljósmynd/Keflavík

Litháinn Dominykas Milka, einn besti leikmaður Dominos-deildar karla í körfubolta á leiktíðinni, er búinn að semja við Keflavík á nýjan leik og mun leika með liðinu á næsta tímabili.

Milka sló í gegn á sinni fyrstu leiktíð með Keflavík og var bæði stigahæsti leikmaður liðsins og með flest fráköst. Skoraði hann 20,9 stig og tók 12,1 frákast að meðaltali í leik á leiktíðinni, sem blásin var af vegna kórónuveirunnar. 

„Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að nú í dag samdi Dominykas Milka við Keflavík og mun hann því mæta á parketið í Blue-höllinni næsta haust. Þetta eru gríðarlega góðar fréttir fyrir alla sem að starfinu koma. Milka var afar ánægður að fá tækifæri til að klæðast Keflavíkurtreyjunni áfram, hann vill ólmur klára það verkefni sem við hófum í byrjun síðasta tímabils.

Frekari frétta má vænta af leikmannamálum næstu daga en þangað til vill Körfuknattleiksdeild Keflavíkur óska öllum gleðilegra páska,“ segir í yfirlýsingu frá Keflavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert