Njarðvíkingar styrkja sig

Rodney Glasgow mun leika með Njarðvík í úrvalsdeild karla á …
Rodney Glasgow mun leika með Njarðvík í úrvalsdeild karla á komandi keppnistímabili. Ljósmynd/Njarðvík

Rodney Glasgow er genginn til liðs við körfuknattleikslið Njarðvíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Glasgow er fæddur árið 1992 en hann er skotbakvörður sem er fæddur í Bandaríkjunum en hann er með breskt vegabréf.

Hann hefur meðal annars leikið í Sviss, Belgíu og Slóvakíu frá því hann útskrifaðist úr VMI-háskólanum í Bandaríkjunum árið 2014. Hann lék með Newcastle á Englandi á síðustu leiktíð þar sem hann varð enskur meistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert