Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt körfuknattleiksdeild ÍR til að greiða Sigurði Gunnari Þorsteinssyni tæpar tvær milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vangoldinna launa.
Sigurður gerði tveggja ára samning við ÍR fyrir síðasta tímabil eftir stutta dvöl í Frakklandi hjá BC Orchies. Sigurður sleit hins vegar krossband strax í fyrsta leik og lék ekki meira með liðinu á tímabilinu. Samningi hans var í kjölfarið rift síðasta vor og ákvað félagið að greiða honum ekki þar sem það taldi hann ekki hafa uppfyllt sinn hluta samningsins.
Dómurinn komst meðal annars að þeirri niðurstöðu að félagið hafi borið áhættuna af því að Sigurður slaðaðist í leik á vegum þess. Lesa má dóminn í heild sinni með því að smella hér.