Magnús Þór ráðinn yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar

Magnús Þór Gylfason
Magnús Þór Gylfason Landsvirkjun

Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar. Magnús Þór er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og býr yfir langri reynslu á sviði samskipta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Magnús Þór hefur starfað hjá Landsvirkjun á samskiptasviði sem staðgengill yfirmanns frá byrjun þessa árs. Magnús Þór var aðstoðarmaður borgarstjórans í Reykjavík á árunum 2008-2010. Á árunum 2006-2008 var hann skrifstofustjóri borgarstjóra og borgarritari með ábyrgð á rekstri og upplýsingamálum.

Á árinu 2008 var hann framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto Alcan á Íslandi. Þá starfaði Magnús Þór um skeið sem framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna og á Ríkisútvarpinu Sjónvarpi sem fréttamaður. Magnús Þór hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa og hefur t.d. setið í menningar- og ferðamálaráði og mannréttindaráði Reykjavíkurborgar og stjórn Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK