CCP tapar 2,4 milljörðum

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. CCP tapaði 2,4 milljörðum á …
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP. CCP tapaði 2,4 milljörðum á síðasta ári, en það má að mestu leyti rekja til niðurfærslu óefnislegra eigna. EBITDA hagnaður nam 2,2 milljörðum.

Tölvufyrirtækið CCP tapaði 21,3 milljónum Bandaríkjadala, eða 2,4 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári, en það má að miklu leyti rekja til afskrifta og niðurfærslu óefnislegra eigna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og skatta (EBITDA) nam 19,8 milljónum Bandaríkjadala, eða 2,2 milljörðum íslenskra króna. 

Tekjur og framlegð félagsins hækkuðu verulega árið 2013 og endaði félagið árið með 14,9 milljónir Bandaríkjadala í handbært fé eftir að hafa greitt niður langtímaskuldir fyrir um 2,1 milljón Bandaríkjadala. Tekjur ársins 2013 námu 76,7 milljónum Bandaríkjadala, eða 8,6 milljörðum íslenskra króna, en það er aukning um 17,5% frá árinu 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar.

Framlegð nam 69,8 milljónum Bandaríkjadala miðað við 60,5 milljónir dala árið áður, sem er aukning um 15,5%. Gjaldfærður rannsóknar- og þróunarkostnaður jókst um 40 milljónir Bandaríkjadala vegna verulegrar aukningar í afskriftum auk niðurfærslu á eignfærðum þróunarkostnaði frá fyrri tímabilum. Þessi niðurfærsla, sem nemur alls 21,5 milljónum dala án skattaáhrifa, á sinn þátt í því að félagið skilar bókfærðu tapi og er liður í endurskoðun á þróunarferlum og vöru áætlunum félagsins fyrir árið 2014 og komandi ár.

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, segir að afskriftirnar núna séu rétt ákvörðun á réttum tíma. „Árið 2013 var mikilvægt ár fyrir CCP. EVE Online fagnaði tíu ára afmæli sínu á árinu og fóru áskrifendur leiksins í fyrsta sinn yfir 500.000, við gáfum út DUST 514 fyrir PlayStation3 og við hófum þróun á nýjum leik; EVE: Valkyrie. Árangur ársins leiddi til metárs í tekjum félagsins og stuðlaði að heilbrigðum vexti þess. Hins vegar leiddi niðurfærsla óefnislegra eigna til bókfærðs taps á árinu. Þessi óefnislega niðurfærsla er rétt ákvörðun á réttum tíma. Við erum að gera upp fortíðina og taka tillit til breyttra forsenda og áherslubreytinga sem orðið hafa með það að leiðarljósi að styrkja og efla rekstur félagsins, sem og að skapa starfsfólki okkar og þróunarteymum réttar aðstæður til framtíðar,“ segir Hilmar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK