Bankar grípa til varna gegn peningaþvætti

Bankarnir efla varnir gegn peningaþvætti.
Bankarnir efla varnir gegn peningaþvætti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það mikla magn fjár og fíkniefna sem lögreglan lagði hald á við handtöku á þremur Pólverjum sem eru grunaðir um stórfelldan fíkniefnainnflutning og peningaþvætti sýnir hversu stór fíkniefnamarkaðurinn er orðinn hér á landi.

Þetta er mat Helga Gunnlaugssonar afbrotafræðings. Hann segir umfangið staðfesta að fíkniefnaneysla sé ekki lengur bundin við jaðarhópa hér. Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Lögregla kyrrsetti fasteignir og lagði hald á hlutabréf, fjármuni og bíla að verðmæti 200 milljónir króna. Götuverðmæti fíkniefnanna gæti numið allt að 400 milljónum króna.

Íslenskir bankar hafa brugðist við auknum tilraunum til fjársvika og peningaþvættis að undanförnu. Í Landsbankanum hefur verið fjölgað sérhæfðu starfsfólki sem annast eftirlit auk reglulegra tilkynninga til peningaþvættisskrifstofu og samskipta við lögreglu. Þá hefur verið fjárfest í tölvukerfum sem gera eftirlit og áhættumat með slíkum málum skilvirkara. Rafrænt eftirlitskerfi bankans greinir óeðlilegar færslur og kannar hvort viðskipti tengist aðilum á válistum, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK