Þrot félagsins sagt gríðarleg vonbrigði

Andri Már Ingólfsson.
Andri Már Ingólfsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Andri Már Ingólfsson eigandi flugfélagsins Primera Air, sem hætti starfsemi í gær eftir 14 ár í rekstri og óskaði eftir greiðslustöðvun, segir í samtali við Morgunblaðið að niðurstaðan sé gríðarleg vonbrigði. „Sárast er þó að sjá þetta uppbyggingarstarf hverfa fyrir allt þetta góða starfsfólk sem hefur unnið að þessu þetta lengi,“ segir Andri.

Hann segir að það hafi ekki orðið ljóst fyrr en á mánudaginn síðasta kl.14 hvernig færi, en bæði hafi verið leitað eftir því að styrkja stöðu félagsins með skuldabréfaútboði upp á 40 milljónir evra, auk þess sem viðræður hafi staðið yfir við nýjan kjölfestufjárfesti. „Við vorum í viðræðum um að fá kjölfestufjárfesti inn í félagið sem okkur leist mjög vel á.“

 Horfur fara ekki batnandi

Spurður nánar um ástæður þess að svo illa fór, segir Andri að bæði hafi félagið þurft á brúarfjármögnun að halda í vetur, auk langtímafjármögnunar fyrir félagið. „Undanfarna mánuði hafa horfur á flugmarkaði ekki farið batnandi, þvert á móti. Það eru ansi miklar blikur á lofti víða. Olíuverð hefur tvöfaldast á síðustu 12 mánuðum og verðlækkun á mörkuðum hefur verið miklu hraðari en menn gerðu ráð fyrir. Við hófum þetta endurfjármögnunarferli í júní, til að komast í gegnum veturinn og fara í þessa stóru aukningu næsta sumar [innsk.blm.: beint áætlunarflug frá meginlandi Evrópu til Ameríku á 10 nýjum langdrægum Boeing Max-9 LR vélum]. Þegar menn skoðuðu horfurnar og sáu að það þyrfti verulega mikið aukið eigið fé til að hrinda þessu í framkvæmd, þá áttuðu menn sig á að það myndi hafa enn alvarlegri afleiðingar að halda áfram rekstri en ekki. Grunnhorfurnar voru ekkert að fara að breytast, hvorki hjá Primera Air né öðrum flugfélögum. Ef við hefðum átt að halda sjó í gegnum þetta næstu tvö árin hefði þurft gríðarlega djúpa vasa. Ég taldi það ekki forsvaranlegt.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK