Brim hf. hefur keypt 6.340.106 eigin hluti að kaupverði 247,1 milljónum króna. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019. Brim átti 8.569.277 eigin hluti fyrir kaupin og eiga að þeim loknum 14.909.383 eigin hluti, sem nemur 0,82% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt útgefinni áætlun mun nema að hámarki 50.000.000 hlutum eða 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 1,9 milljarðar króna. Áætlunin gildir fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.