„Óforsvaranlegt með öllu“

Eldisk­ví­ar Akvafut­ure við Sæterosen í Vel­fjord.
Eldisk­ví­ar Akvafut­ure við Sæterosen í Vel­fjord.

Landssamband veiðifélaga gerir alvarlegar athugasemdir við áform Akvafuture um 20.000 tonna fiskeldi í Eyjafirði. Telur sambandið ótímabært með öllu að ráðast í umrædda framkvæmd.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu en greint var frá áformunum hér á 200 mílum í desember.

Fullyrt er í tilkynningunni að ljóst sé af matsáætlun að eldiskvíar fyrirtækisins hafi verið notaðar í skamman tíma í Noregi. Lítil reynsla sé komin á hversu fiskheldar þær eru.

„Sá búnaður sem stendur til að nota hefur ekki verið prófaður við íslenskar aðstæður. Tilgreindur búnaður er aðeins gefinn upp fyrir ölduhæð að tveimur metrum og telur Landssambandið að slíkan búnað verði að meta mjög ótraustan við íslenskar aðstæður,“ segir í tilkynningunni.

Engin reynsla á notkun kerfisins

„Það er óforsvaranlegt með öllu að ráðast í stórfellt sjóeldi á allt að 10 milljónum laxa í svo veikburða búnaði, sem engin reynsla er komin á við íslenskar aðstæður, í námunda við helstu laxveiðiár á Norður- og Austurlandi. Landssambandið telur að í ljósi þess að engin reynsla er á notkun þessa kerfis í sjókvíaeldi við Ísland verði að meta hættu á slysasleppingum frá eldinu með sama hætti og um hefðbundnar sjókvíar sé að ræða.“

Tekið er þá fram að sambandið leggist eindregið gegn fyrirhugaðri framkvæmd.

„Landssamband veiðifélaga setur fram ófrávíkjanlega kröfu um að sá búnaður sem fyrirtækið hyggst nota til eldisins verði þaulprófaður við íslenskar aðstæður og vottaður traustur af innlendum aðilum. Niðurstöður þeirra rannsókna verði síðan forsendur ákvörðunar um hvort taka megi búnaðinn til stórfelldrar framleiðslu á frjóum laxi í sjó við Ísland.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »