Veiðigjöld verði 75% af umframarði

Lagt er til að auðlindagjald af sjávarútvegi miðist við 75% …
Lagt er til að auðlindagjald af sjávarútvegi miðist við 75% af umframarði greinarinnar. mbl.is/Þorgeir

Meðal tillagna í skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors og Indriða H. Þorlákssonar fyrir Eflingu er lagt til að veiðigjöld verði hækkuð verulega ásamt því að auðlindagjald verði innheimt við orkuframleiðslu, fiskeldi og ferðaþjónustu.

Skýrsluhöfundar telja að gjaldtaka eigi að miðast við að ríkissjóður fái í sinn hlut að minnsta kosti 75% af umframarði í sjávarútvegi með veiðigjöldum og/eða uppboði á kvóta. Unnið verði að frekari breytingum á innheimtu veiðigjalda af sjávarútvegi.

Einnig leggja þeir til að sérstakt orkugjald verði lagt á sölu orku til stóriðju sem taki mið af mismun af orkuverði til stóriðju á Íslandi og í Evrópu, „að teknu tilliti til fjarlægðaráhrifa“.

Fiskeldi og námuvinnsla á einnig að greiða sitt í ríkissjóð og er lagt til að auðlindagjald verði lagt á leyfi til slíkrar nýtingar náttúruauðlinda.

Einnig er lagt til í skýrslunni að leiðir verði kannaðar til þess að „leggja auðlindagjald (aðstöðugjald eða uppboð) á þá aðila sem fengið hafa einkarétt til nýtingar á náttúruauðlindum til ferðaþjónustu“.

Ferðamenn við Geysi í Haukadal.
Ferðamenn við Geysi í Haukadal. mbl.is/RAX

Ofangreindar breytingar eru rökstuddar með fullyrðingu um að ekki hafi verið tryggt að þjóðin fái réttmæta hlutdeild í arðinum þegar nýtingarréttur auðlinda í eigu ríkis og sveitarfélaga er í höndum einkaaðila.

„Þrátt fyrir ákvæði stjórnarskrár og laga um eign þjóðarinnar á náttúruauðlindunum hefur þeim verið ráðstafað til einkaaðila án eðlilegs endurgjalds. Breyting á því er í senn réttlætismál og tekjulind fyrir ríkissjóð sem getur í staðinn létt sköttum af almenningi,“ segir í skýrslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »