James Hatuikulipi, einn þeirra þriggja sem kallaðir voru „hákarlarnir“ í umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kveiks um Samherjaskjölin, er hættur sem stjórnarformaður sjávarútvegsfyrirtækisins Fishcor í Namibíu.
Namibíska dagblaðið Namibian Sun segir frá þessu á forsíðu sinni á morgun, en blaðið hefur nú þegar birt forsíðuna á vefnum.
Hatuikulipi þessi er frændi Tamson Hatuikulipi, en það er tengdasonur Bernhards Esau fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, sem hrökklaðist af ráðherrastóli vegna umfjöllunar um Samherjaskjölin rétt eins og Sacky Shanghala, sem var dómsmálaráðherra. Hákarlarnir þrír hafa nú allir vikið úr störfum sínum vegna Samherjamálsins.
Samkvæmt umfjöllun Kveiks og Stundarinnar upp úr Samherjaskjölunum úthlutaði Esau hrossamakrílkvóta til Fischor og kvótinn síðan seldur áfram til Samherja, „á sannkölluðum vildarkjörum“ eins og segir í umfjöllun Kveiks.
Á forsíðu Namibian Sun á morgun kemur fram að Mike Nghipunya sitji enn sem framkvæmdastjóri Fischor, sem er ríkisrekið sjávarútvegsfyrirtæki landsins, en áður hafði verið greint frá því í namibískum miðlum að Leon Jooste, ráðherra sem fer með málefni ríkisfyrirtækja í landinu, hafi farið fram á að þeim yrði báðum vikið frá störfum vegna málsins.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |