Segir ekki útilokað að meiri loðnu sé að finna

Veður hafði áhrif á mælingar loðnuleiðangursins.
Veður hafði áhrif á mælingar loðnuleiðangursins. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ekki var hægt að tryggja samfellda yfirferð í loðnuleiðangrinum, meðal annars sökum veðurs, og getur það haft áhrif á áreiðanleika mælinga á loðnustofninum sem fóru fram fyrir skömmu, að sögn Birkis Bárðasonar fiskifræðings.

„Það er rétt að æskilegt er að ná samfelldri yfirferð yfir allt svæðið, en hinsvegar voru þetta stuttar frátafir í hvort skipti auk þess sem lítið var af loðnu á þeim svæðum sem frá þurfti að hverfa en það er sérstaklega óheppilegt ef rof verður í mælingunni þar sem mikið er af loðnu. Auk þess hindraði hafís okkur talsvert út af Vestfjörðum og því ekki hægt að útiloka að ekki sé meiri loðnu að finna. Þannig að við munum líklega ekki fá úr því skorið hversu áreiðanleg þessi mæling var fyrr en við fáum niðurstöður úr endurtekinni mælingu í febrúar,“ segir Birkir í svari við fyrirspurn við 200 mílna.

Er hann er inntur álits á því hvort hægt sé að gefa út lítinn loðnukvóta óháð mælingum og sem myndi ekki stefna stofninum í hættu, segir hann erfitt að svara þeirri spurningu. „Vandinn við það er að erfitt er að vita fyrirfram hversu lítill sá kvóti þarf að vera til að ekki sé verið að stefna stofninum í hættu og því getur verið erfitt að mæla með slíku sem hluta af ábyrgri fiskveiðistjórnun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »