Hafa framselt 84,5% hlut í Samherja

Baldvin Þorsteinsson og Katla Þorsteinsdóttir munu fara samanlagt með um …
Baldvin Þorsteinsson og Katla Þorsteinsdóttir munu fara samanlagt með um 43,0% hlut í Samherja eftir að hafa keypt hluti í félaginu af föður sínum, Þorsteini Má Baldvinssyni, sem mun áfram vera forstjóri þess. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Aðaleigendur Samherja hf., þau Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir, fara nú aðeins með 2% af hlutafé félagsins eftir að hafa framselt hlutabréfaeign sína í Samherja til barna sinna. Fyrir breytingarnar fóru þau samanlagt með 86,5% hlutafjár í félaginu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Samherja.

Fram kemur að stærstu hluthafar verða nú Baldvin Þorsteinsson og Katla Þorsteinsdóttir, sem munu fara samanlagt með um 43,0% hlut í Samherja og Dagný Linda Kristjánsdóttir, Halldór Örn Kristjánsson, Kristján Bjarni Kristjánsson og Katrín Kristjánsdóttir sem munu fara samanlagt með um 41,5% hlutafjár.

„Undirbúningur þessara breytinga á eignarhaldi hefur staðið undanfarin tvö ár en áformin og framkvæmd þeirra voru formlega kynnt í stjórn félagsins á miðju ári 2019. Með þessum hætti vilja stofnendur Samherja treysta og viðhalda þeim  mikilvægu fjölskyldutengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið hornsteinn í rekstrinum,“ segir í tilkynningunni.

Halda störfum sínum

Þá segir að fyrrgreind viðskipti ná aðeins til hlutabréfa í Samherja hf. sem fer með innlenda starfsemi samsteypunnar, en erlend starfsemi hennar er á höndum Samherja Holding ehf. En Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri félagsins, munu áfram gegna störfum sínum hjá Samherja.

„Við frændurnir höfum fullan metnað til að taka þátt í áframhaldandi rekstri Samherja. Félagið á mikla og bjarta framtíð fyrir sér og hefur vaxið og dafnað þrátt fyrir ýmsa erfiðleika. Starfsfólk okkar hefur sýnt eigendum og félaginu einstakt traust í áratugi og lagt grunn að þeim stöðugleika sem er lykilatriði í starfseminni. Nú fáum við nýja kynslóð til liðs við okkur. Við fáum tækifæri til að halda áfram að skapa verðmæti með fullnýtingu hráefnis, veita vinnu og starfsöryggi og tryggja enn frekar þau mikilvægu gildi um sjálfbærni og vandaða umgengni um auðlindina sem verið hefur stefna Samherja frá upphafi,“ er haft eftir Þorsteini og Kristjáni í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »