Samherjabeiðni til úrskurðarnefndar upplýsingamála

Aðstandendur fréttaskýringaþáttarins Kveiks hafa óskað eftir afriti af ársreikningum félögum …
Aðstandendur fréttaskýringaþáttarins Kveiks hafa óskað eftir afriti af ársreikningum félögum tengd Samherja. Beiðninni hefur verið hafnað af skattrannsóknastjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Beiðni fréttaskýringaþáttarins Kveiks á RÚV um að fá afhent ársreikninga erlendra félaga sem tengjast Samherja hefur verið hafnað af embætti skattrannsóknastjóra.

„Þau gögn sem beiðni yðar lýtur að eru hluti af rannsókn sakamáls og þeirra var aflað í þágu rannsóknarinnar. Fellur beiðni þín því utan gildissviðs upplýsingalaga,“ segir í svari skattrannsóknarstjóra til Kveiks, að því er fram kemur á vef RÚV.

Þar segir að niðurstaða skattrannsóknarstjóra hafi verið kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.

Starfsemi Samherja í Namibíu hefur verið til rannsóknar um nokkuð skeið í tengslum við meinta spillingu, skattsvik og peningaþvætti. Komu fram ásakanir í þætti Kveiks í nóvember 2019 um að félagið hafi innt af hendi mútugreiðslur til þess að komast yfir aflaheimildir í Namibíu.

Vilja gögn um taprekstur

Kveikur segir Samherja hafa lýst því yfir á vef félagsins í ágúst að það hafi verið tap á rekstri Samherja í Namibíu árin 2012 til 2018 en að engin gögn hafi fylgt yfirlýsingunni.

Samantekin reikningsskil sem Morgunblaðið fékk aðgang að í ágúst sýndu að dótturfélög Samherja í Namibíu töpuðu nærri einum milljarði króna á umsvifum sínum á árunum 2012 til 2018. Námu rekstrartekjur 41,1 milljarði króna og rekstrarkostnaður 38,9 milljörðum. Að teknu tilliti til afskrifta, fjármagnsgjalda, tekjuskatts og annarra þátta var afkoma félaganna neikvæð á tímabilinu.

Sagði Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, í Morgunblaðinu í ágúst þessar ofangreindu tölur staðfesta að fullyrðingar sem komið hafa fram á undanförnum mánuðum þess efnis að fyrirtækið hafi „arðrænt“ samfélagið í Namibíu séu ekki á rökum reistar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 604,92 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,79 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 280,26 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 248,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 261,04 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 320,81 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,83 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Tóti NS 36 Handfæri
Þorskur 147 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 150 kg
19.9.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Þorskur 1.856 kg
Ufsi 30 kg
Ýsa 12 kg
Karfi 4 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 1.904 kg
19.9.24 Sara ÍS 186 Annað - Hvað
Ýsa 539 kg
Þorskur 131 kg
Samtals 670 kg
19.9.24 Hafbjörg ST 77 Þorskfisknet
Þorskur 1.997 kg
Ufsi 69 kg
Samtals 2.066 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.9.24 604,92 kr/kg
Þorskur, slægður 19.9.24 383,79 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.9.24 280,26 kr/kg
Ýsa, slægð 19.9.24 248,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 261,04 kr/kg
Ufsi, slægður 19.9.24 320,81 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 19.9.24 329,83 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.9.24 Tóti NS 36 Handfæri
Þorskur 147 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 150 kg
19.9.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Þorskur 1.856 kg
Ufsi 30 kg
Ýsa 12 kg
Karfi 4 kg
Skarkoli 2 kg
Samtals 1.904 kg
19.9.24 Sara ÍS 186 Annað - Hvað
Ýsa 539 kg
Þorskur 131 kg
Samtals 670 kg
19.9.24 Hafbjörg ST 77 Þorskfisknet
Þorskur 1.997 kg
Ufsi 69 kg
Samtals 2.066 kg

Skoða allar landanir »