Saka útgerðir um óbilgirni og græðgi

Fulltrúar þriggja stéttarfélaga sjómanna segja íýfirlýsingu útgerðir ekki reiðubúna til …
Fulltrúar þriggja stéttarfélaga sjómanna segja íýfirlýsingu útgerðir ekki reiðubúna til að fjárfesta í starfsfólki sínu. Ljósmynd/Þröstur Njálsson

„Sjómenn hafa verið samningslausir í 21 mánuð og reynt hefur verið til þrautar að ná kjarasamningi, en óbilgirni útgerðarmanna, hroki og græðgi koma í veg fyrir að samningar náist,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu Sjómannafélags Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur og VM Félagi vélstjóra og málmtæknimanna.

Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að félög sjómanna slitu viðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) en í tilkynningu frá samtökunum í morgun var fullyrt að ef fallist yrði á kröfur félaganna hlypi kostnaður vegna þeirra á milljörðum króna ár hvert. „Ef gengið yrði að kröfum stéttarfélaganna, má ljóst vera að mörg fyrirtæki gætu ekki staðið undir þeim og einstakir útgerðarflokkar gætu jafnvel lagst af.“

Þessu er vísað á bug í yfirlýsingu þriggja félaga sjómanna sem segja aðalkröfu stéttarfélaganna hafa verið að „sama sé greitt fyrir sjómenn í lífeyrissjóð og aðra landsmenn. Þessu hafa útgerðarmenn algjörlega hafnað en tjáð forystumönnum sjómanna að það sé í lagi þeirra vegna að sjómenn greiði sjálfir fyrir hækkun í lífeyrissjóð t.d með því að greiða hluta af auðlindagjöldum útgerðamanna.“

Áætla félögin að það kosti útgerðarfélögin um 1,5 milljarð á ári að gangast við kröfu sjómanna um hærri greiðslur í lífeyrissjóð til jafns við aðrar stéttir.

„Þegar samið var um aukið mótframlag í lífeyrissjóði lækkaði ríkið tryggingagjaldið á móti, líka á útgerðarfyrirtæki. Útgerðarfyrirtæki borga um 600 milljónum minna í tryggingagjald en þau gerðu á árinu 2016 þrátt fyrir þessa ráðstöfun frá ríkinu vilja þau ekki hækka mótframlag í lífeyrissjóð til sjómanna.“

Benda félögin meðal annars á að hreinn hagnaður útgerðarfyrirtækja árin 2010 til 2019 hafi verið 209 milljarðar króna. „Það er staðreynd að útgerðarfyrirtæki stórgræði, það er staðreynd að eigendur þeirra stórgræði og það er staðreynd að eigendur fyrirtækjanna vilja fjárfesta í flestu nema sínu starfsfólki. Þau vilja eignast Ísland og auðlindir okkar án þess að greiða fyrir það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »