Grunur er um að smit sé komið upp enn eina ferðina um borð í togaranum Bergey VE. Skipið er komið til hafnar í Vestmannaeyjum og er gert ráð fyrir að sýnataka fari fram í dag. Þetta herma heimildir 200 mílna.
Stutt er frá því að stöðva þurfti veiðar þegar skipverjar reyndust smitaðir í desember.
Skipið hélt til veiða frá Vestmannaeyjum um klukkan sjö í morgun eftir að lokið var við löndum um 80 tonnum sem komið var með til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Var þá stefnan sett á miðin suður af Sólheimasandi en eftir nokkra siglingu austur fyrir Vestmannaeyjar vaknaði grunur um smit og var skipinu snúið við og haldið til hafnar á ný.
Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs Hugins, segir samtali við blaðamann að grunur hafi vaknað um smit. „Þetta er ekki staðfest smit, einn er grunaður og hann þarf bara að fara í sýnatöku. Við teflum ekkert á tvær hættur í þessu þessa dagana.“
Nokkur bræla hefur verið á miðunum og veðurhorfur eru versnandi að sögn Arnars. Fari allt að óskum heldur skipið til veiða á ný þegar veður gengur niður síðar í vikunni.
Í síðasta mánuði kom einnig upp smit um borð. Greindust þrír með hraðprófi þann 4. desember og reyndust síðar sex skipverjar smitaðir af veirunni. Áhöfnin var þá send í sóttkví og skipið sótthreinsað hátt og lágt.
Þann 12. desember gat skipið haldið til veiða á ný, en Bergey var jafnframt fyrsta skipið í flota Síldarvinnslunnar og dótturfélaga til að landa afla á nýju ári þegar það kom til hafnar í gærkvöldi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |