635 milljóna króna mettúr hjá áhöfninni á Blængi

„Það er hörkumannskapur um borð og mórallinn afar góður. Það …
„Það er hörkumannskapur um borð og mórallinn afar góður. Það þarf dugnaðarmenn í túra eins og þennan og þeir eru svo sannarlega til staðar á Blængi,“ segir Sigurður Hörður Kristjánsson skipstjóri á Blængi. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Smári Geirsson

Blængur NK kom til hafnar í Neskaupstað í gær með 1.175 tonna afla og er verðmæti hans 635 milljónir króna. Um er að ræða mettúr þar sem þetta eru mestu aflaverðmæti sem skip í eigu Síldarvinnslunnar hefur borið að landi úr einni veiðiferð.

Þetta kemur fram í færslu á vef útgerðarinnar. Þar segir jafnframt að um hafi verið að ræða 40 daga túr í Barentshafi og að hásetahluturinn sé um 6 milljónir króna.

„Við veiddum innan norskrar lögsögu og hófum veiðarnar á Fuglabankanum og síðan var veitt á Nysleppen og Líksnaganum. Um miðjan túr færðum við okkur og veiddum eftir það á Garðarsbanka og á Fingrinum austan við Bjarnarey. Veðrið var dálítið rysjótt og lágum við til dæmis í vari við Bjarnarey í á annan sólarhring. Veiðin á þessum slóðum var ekkert sérstaklega góð miðað við það sem ég hef áður kynnst en fiskverð er hátt um þessar mundir og verðmætin því mikil,“ segir Sigurður Hörður Kristjánsson, skipstjórinn á Blængi, í færslunni.

Blængur NK í höfn í Neskaupstað.
Blængur NK í höfn í Neskaupstað. Ljósmynd/Hákon Ernuson

Krefst dugnaðarmanna

Skipstjórinn segir nýtt troll hafi skipt sköpum. „Við tókum í notkun nýtt troll frá Hermanni Guðmundssyni í Hampiðjunni í þessum túr og það reyndist einstaklega vel. Við höfum lengi notað troll frá Hermanni með góðum árangri. Þetta nýja troll reyndist svo vel að við vorum ekki miklir eftirbátar tveggja trolla togaranna sem þarna voru. Trollin frá Hermanni eru kunn og ávallt er verið að þróa þau og bæta.“

„Annars má segja að þessi túr hafi verið hinn ánægjulegasti. Það er hörkumannskapur um borð og mórallinn afar góður. Það þarf dugnaðarmenn í túra eins og þennan og þeir eru svo sannarlega til staðar á Blængi,“ segir Sigurður Hörður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.9.24 561,35 kr/kg
Þorskur, slægður 18.9.24 601,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.9.24 245,22 kr/kg
Ýsa, slægð 18.9.24 294,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.9.24 221,87 kr/kg
Ufsi, slægður 18.9.24 284,94 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 18.9.24 275,09 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 20.939 kg
Skarkoli 505 kg
Þorskur 191 kg
Steinbítur 30 kg
Samtals 21.665 kg
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 4.702 kg
Þorskur 3.032 kg
Langlúra 147 kg
Ufsi 60 kg
Karfi 44 kg
Sandkoli 41 kg
Samtals 8.026 kg
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Þorskur 4.556 kg
Skarkoli 2.602 kg
Ýsa 2.186 kg
Steinbítur 196 kg
Sandkoli 95 kg
Samtals 9.635 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.9.24 561,35 kr/kg
Þorskur, slægður 18.9.24 601,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.9.24 245,22 kr/kg
Ýsa, slægð 18.9.24 294,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.9.24 221,87 kr/kg
Ufsi, slægður 18.9.24 284,94 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 18.9.24 275,09 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót
Ýsa 20.939 kg
Skarkoli 505 kg
Þorskur 191 kg
Steinbítur 30 kg
Samtals 21.665 kg
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 4.702 kg
Þorskur 3.032 kg
Langlúra 147 kg
Ufsi 60 kg
Karfi 44 kg
Sandkoli 41 kg
Samtals 8.026 kg
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Þorskur 4.556 kg
Skarkoli 2.602 kg
Ýsa 2.186 kg
Steinbítur 196 kg
Sandkoli 95 kg
Samtals 9.635 kg

Skoða allar landanir »