Reisa minningarreit látinna starfsmanna

Minningarreiturinn samkvæmt tillögu Kristjáns Breiðfjörð Svavarssonar
Minningarreiturinn samkvæmt tillögu Kristjáns Breiðfjörð Svavarssonar Mynd/Síldarvinnslan

Framkvæmdir við gerð minningarreits helgaður þeim sem hafa látist við störf hjá Síldarvinnslunni hófust rétt eftir páska og miðar þeim samkvæmt áætlun, að því er fram kemur í færslu á vef fyrirtækisins. Stefnt er að því að öllum framkvæmdum við gerð reitsins ljúki í sumar.

Reiturinn er á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar sem eyðilagðist í snjóflóði 20. desember 1974, en þá létust sjö. Á þessum stað stendur gamall gufuketill sem verður hluti af reitnum.

Árið 2018 var efnt til samkeppni um útfærslu á reitnum og voru þátttakendur beðnir um að „taka tillit til þess að reiturinn ætti að vera friðsæll og hlýlegur staður og þar ætti að vera aðstaða fyrir fólk til að setjast niður og njóta kyrrðar.“ Jafnframt átti að gera ráð fyrir minningarskildi eða minningarskjöldum um þá sem látist hafa í starfi auk þess sem sögu Síldarvinnslunnar yrði gerð skil.

Átta tillögur bárust og voru þær metnar af dómnefnd. „Niðurstaðan varð sú að tillaga Kristjáns Breiðfjörð Svavarssonar bar sigur úr býtum en einnig hlaut hluti tillögu Ólafíu Zoëga verðlaun. Á grundvelli tillagnanna tveggja hefur Landmótun – landslagsarkitektar séð um hönnun á svæðinu sem minningarreiturinn verður gerður á,“ segir í færslunni.

Framkæmdir við gerð minningarreitsins eru hafnar.
Framkæmdir við gerð minningarreitsins eru hafnar. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Smári Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,28 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,31 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 117,21 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,28 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,31 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 117,21 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »