Sækja ekki slasaða sjómenn lengra en 20 sjómílur

Þyrlur Landhelgisgæslunnar sækir ekki veika eða slasaða sjómenn sem eru …
Þyrlur Landhelgisgæslunnar sækir ekki veika eða slasaða sjómenn sem eru lengra en 20 sjómílur frá landi ef aðeins ein þyrla er til taks. Ljósmynd/Slysavarnaskóli sjómanna

„Það er ólíðandi og til skammar að ríkisvaldið sjái ekki sóma sinn í að semja við flugmenn LHG,“ segir í yfirlýsingu frá samtökum íslenskra sjómanna vegna skertar þjónustu þyrlusveita Landhelgisgæslunnar.

Í yfirlýsingunni er vakin athygli á að nokkur tilvik hafi komið upp þar sem ekki hafi verið hægt að sækja veika og slasaða sjómenn á haf út, nema þeir séu innan við 20 sjómílúr frá landi. „Einnig hefur komið fyrir að engin þyrla sé til taks þegar þörf er á. Nú síðast í fyrradag vegna alvarlegs umferðarslyss.“

„Mínútur skipta máli“

Undir yfirlýsinguna skrifa formenn Félags skipstjórnarmanna, VM – félags vélstjóra og málmtæknimanna, Sjómannasambands Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur og og Sjómannafélags Íslands.

Benda samtökin á að þegar ein þyrla er til taks fari hún ekki lengra frá landi en 20 sjómílur. „Ef skip eru utan 20 sjómílna markanna þurfa þau að sigla til móts við þyrlu með hinn slasaða eða veika. Mínútur skipta máli í þessu sambandi hvað þá klukkustundir eins og dæmi eru um. Samtök sjómanna minna á skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landhelgisgæslu Íslands – úttekt á verkefnum og fjárreiðum,“ segir í yfirlýsingunni.

Tvær þyrlur á öllum stundum

Þá segir að um „grafalvarlegt mál“ sé að ræða sem „getur skipt sköpum fyrir líf og heilsu Íslenskra sem og erlendra sjómanna.“ Vegna þessa sé það „skýlaus krafa samtaka sjómanna að stjórnvöld sjái til þess að LHG hafi nægt rekstrarfé til að manna alltaf tvær þyrlur og að þær séu til taks öllum stundum.“

Telja sjómenn mörg dæmi sýna nauðsyn þess að „sjúkrabíll hafsins“ nái til allra þeirra sem þurfa á aðstoð að halda á sem skemmstum tíma allan ársins hring.

Að lokum minna samtök sjómanna á að flugmenn Landhelgisgæslu Íslands séu með lausa kjarasamninga sem hafa verið lausir í álíka langan tíma og kjarasamningar sjómanna.

Björgunaræfing Landhelgisgæslunnar.
Björgunaræfing Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »