Varðskipið Freyja heldur í dag áleiðis til Stavanger í Noregi. Þar verður skipið tekið í slipp 18. ágúst, það málað og unnið að minniháttar viðhaldi. Að þeirri vinnu lokinni „kemur skipið aftur til Íslands eins og nýsleginn túskildingur,“ eins og Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, orðar það.
Freyja lagðist að bryggju í Reykjavík í fyrrakvöld og hefur áhöfnin unnið að því að gera skipið ferðbúið fyrir siglinguna.
Freyja var máluð í litum Gæslunnar í Hollandi. Þegar skipið kom til landsins i nóvember síðastliðnum varð ljóst að sú vinna hafði mistekist gjörsamlega. Hefur Freyjan verið flekkótt við gæslustörfin á miðunum síðan þá.
Ríkiskaup bauð út málningarvinnuna og barst eitt tilboð, frá skipasmíðastöðinni GMC Yard AS í Stavanger í Noregi. Hljóðaði það upp á rúmar 258 þúsund evrur, jafnvirði rúmlega 35 milljóna íslenskra króna.
Seljandi skipsins verður krafinn um greiðslu kostnaðar við málningu skipsins þar sem um augljós mistök af hans hálfu var að ræða. Formleg krafa er í undirbúningi, að sögn Ásgeirs. sisi@mbl.is
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |