Íslenskt hugvit í lykilhlutverki í Ameríku

Átaki um bætta nýtingu vatnakarfa og hvítfisks í vötnunum miklu …
Átaki um bætta nýtingu vatnakarfa og hvítfisks í vötnunum miklu fer formlega af stað á morgun við hátíðlega athöfn í Detroit í Michigan-ríki. Ljósmynd/Michael Tighe

Samtök ríkisstjóra bandarískra ríkja og forsætisráðherra kanadísku héraðanna við vötnin miklu og St. Lawrence-á (Great Lakes and St. Lawrence Governors and Premiers) hafa ákveðið að hrinda af stað átaki í þeim tilgangi að stuðla að bættri nýtingu hvítfisks.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Íslenska sjávarklasann og nefnist „100% Whitefish” sem vísar í þau tækifæri sem skapast við að auka nýtingu aukaafurða hvítfisks, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þar segir að Íslenski sjávarklasinn hafi í þrjú ár unnið i nánu samstarfi við samtökin að því hvernig megi bæta nýtingu tegundanna vatnakarfa og hvítfisk í Vötnunum miklu til að auka verðmætin sem nýting þeirra skilar.

Vatnakarfinn er í tilkynningunni sagður vera ágeng tegund sem ógnað hefur öðru lífríki í Vötnunum miklu og því hefur verið talið brýnt að auka veiðar úr þessum stofni. Hvítfiskurinn er hins vegar vinsæl fisktegund og áhugi er á því að nýta betur aukaafurðir hans.

Vötnin miklu eru gríðarstór og er þar fjöldi fiskistofna.
Vötnin miklu eru gríðarstór og er þar fjöldi fiskistofna. Ljósmynd/NASA

Átakið fer formlega af stað á morgun í Detroit í Michigan-ríki, en þekking Íslendinga er þar í lykilhlutverki.  Íslenski sjávarklasinn hefur leitt vinnunna og hafa komið að verkefninu sérfræðingar Matís og tæknifólk frá Marel og Curio. „Á næstu misserum má gera ráð fyrir að hópur íslenskra sérfræðinga sem komi að alþjóðlegri ráðgjöf klasans af þessu tagi stækki.“

„Verkefnum Sjávarklasans og samstarfsaðila hans af þessu tagi hefur fjölgað utan Íslands. Við sjáum mikil tækifæri fyrir Íslendinga til að nýta íslenskt hugvit og reynslu til að bæta nýtingu sjávarafurða og um leið að stuðla að minni sóun og draga úr kolefnisspori í matvælaframleiðslu á heimsvísu,” segir Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »